Viðburðurinn „Orkuskipti: Þáttur fluggeirans og framtíðarhorfur“, hlýtur jafnréttisstimpil KÍO fyrir að vera Viðburður í jafnvægi
Stjórn KÍO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á 6. viðburði Grænu orkunnar og Orkustofnunar um orkuskipti sem haldinn er 22. nóv. nk. og gleðst yfir því að þar er jafnvægi í kynjahlutfalli framsögumanna. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í Orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í orkumálum.
Við óskum Grænu orkunni og Orkustofnun, sem að viðburðinum standa, til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða.
Við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan áhugaverða viðburð.
Nánar um viðburðinn, Orkuskipti: Þáttur fluggeirans og framtíðarhorfur, á facebook:
Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi - Jafnréttisstimpill KÍO“, má finna hér á heimasíðu félagsins: